Ópus 1-6 |
|
|
![]() |
| Ópus 1, 2 og 3 eru kennslubækur
ætlaðar nemendum sem stunda grunnnám í tónfræðum og Ópus 4, 5 og 6 eru fyrir miðnám. Við gerð bókanna var stuðst við námskrá mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Efni bókanna hefur verið kennt til reynslu í Tónlistarskóla Kópavogs. Áhersla er lögð á að kenna tónfræðilegu þekkingaratriðin á fjölbreyttan og myndrænan hátt. Myndræn og litrík framsetning miðar að því að nemandinn geti tileinkað sér námsefnið á sem stystum tíma. Í bókunum eru einnig nokkrir fróðleiksmolar úr tónlistarsögunni. Höfundar: Guðfinna Guðlaugsdóttir og Marta E. Sigurðardóttir. Hönnun, umbrot og myndskreytingar: Rán Flygenring. Nótnaskrift: Hilmar Þórðarson og Rán Flygenring.. |
|
Dreifing: TÓNASTÖÐIN
ehf. Skipholti 50d, 105 Reykjavík,
sími: 552 1185 netfang: tonastodin@tonastodin.is
Ef upplýsinga er óskað frá höfundum, vinsamlegast skrifið á netfangið: express@talnet.is |
|